mjúk – rakagefandi líkamsskrúbbur með villtum íslenskum jurtum
mjúk er einstakur mýkjandi og rakagefandi líkamsskrúbbur sem inniheldur kröftugar
villtar íslenskar jurtir í bland við epsom salt og heilandi kjarnaolíur sem færa
líkamanum náttúrulegan ilm. mjúk, sem geymir íslenskar lækningajurtir og
verndandi olíur, fjarlægir dauðar húðfrumur og endurnýjar húðina og eftir sitja
olíur sem vernda og stinna líkamann og gera hann silkimjúkan.
Nuddið vænu magni af mjúk á þurra húðina. Við mælum með hringlaga nuddhreyfi ngum frá
toppi til táar. Hreinsið burt með heitu vatni og þurrkið varlega á eftir. Þar sem
mjúk inniheldur náttúruleg hreinsiefni er óþarft að nota sápu. Með því má
auka virkni lækningjurtanna og hinna heilandi kjarnaolía.
Fyrir konur og karlmenn.

Inniheldur: Möndluolíu,*, epsom salt, E-vítamín, lífrænt vottaðar heilandi
kjarnaolíur*, villtar íslenskar lækningajurtir (betula alba,achillea millefolium,
salix phylicifolia, uva urse). Engin innihaldsefni hafa verið prófuð á dýrum.
*Lífrænt vottað.
Fæst í 250 ml